1. september 2022

Fagleg þjónusta í samfélagi margbreytileikans á Suðurnesjum

Fagleg þjónusta í samfélagi margbreytileikans á Suðurnesjum

Fjölmenning auðgar er námskeið sem fór af stað miðvikudaginn 24. ágúst sl. og var haldið hér í Krossmóa 4. Kristín Hjartardóttir, verkefnastýra hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS), leiddi námskeiðið.

Námskeiðið var þróað hjá Fjölmenningarsetri Íslands og hefur Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum tekið að sér námskeiðahald. Þrír starfsmenn Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum sóttu námskeið á vegum Fjölmenningarseturs, sem var sérstaklega hugsað sem efling leiðbeinenda fyrir þá sem sinna fræðslu námskeiðsins. En fimm starfsmenn MSS munu sinna fræðslu á námskeiðinu, ásamt Kristínu eru það Inga Sif náms- og starfsráðgjafi, Jóhann Birnir verkefnastjóri, Linda Björk verkefnastýra og Steinunn Björk náms- og starfsráðgjafi.

Suðurnesin eru fjölmenningarsamfélag með fjölmörgum tækifærum en jafnframt áskorunum. Mikilvægt að auka meðvitund um þær áskoranir sem geta falist í fjölbreyttri sýn og fjölbreyttum venjum fólks og styrkja þannig framlínuna sem sinnir þjónustu í samfélagi margbreytileikans.

Sveitarfélögin á Suðurnesjum og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum vinna saman að verkefni sem ber heitið Velferðarnet Suðurnesja ásamt Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, lögreglunni á Suðurnesjum, Sýslumanninum á Suðurnesjum og Vinnumálastofnun Suðurnesja. Nú í haust verður námskeiðaröð í boði fyrir allt starfsfólk á starfsstöðum fyrrnefndra opinberra þjónustuaðila og sérstök áhersla verður lögð á að ná til starfsfólks sem starfar í framlínu stofnana og sveitarfélaga.

Námskeiðaröðin hófst, sem fyrr segir, í síðustu viku með þátttöku leiðtoga ofangreindra starfsstöðva. Gríðarlega ánægja var með námskeiðið og er óhætt að segja að þátttakendur á þessu fyrsta námskeiði séu spenntir fyrir þeim samtakamætti sem námskeiðið mun hafa.

Með námskeiðinu er starfsfólki gefin tækifæri til þess að koma auga á auðinn sem felst í margbreytileikanum og verkfæri til þess að takast á við áskoranir fjölbreytileika samfélagsins. Unnið er að því að efla starfsfólk til þess að þjónusta íbúa Suðurnesja enn betur með viðhorfavinnu og virku samtali.

Með námskeiðunum er unnið að því styrkja sterka heild opinberrar þjónustu á Suðurnesjum, tryggja notendavænt viðmót í þjónustu fyrir alla einstaklinga og vellíðan starfsfólks í síbreytilegu og margbreytilegu starfsumhverfi.

Til baka í fréttir