7. september 2009

Formleg opnun MSS á Ljósanótt

Formleg opnun MSS á Ljósanótt

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum flutti nýlega starfsemi sína í nýtt húsnæði að Krossmóa 4 í Reykjanesbæ. 

Formleg opnun á húsnæðinu fór fram föstudaginn 4. september að viðstöddum fjölda góðra gesta. Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, heimsótti MSS að því tilefni, einnig Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, bæjarfulltrúar auk fjölda velunnara og samstarfsaðila Miðstöðvarinnar. Opnunarhátíðin heppnaðist vel og þakkar MSS öllum gestum fyrir komuna.


Nýja húsnæðið er hið glæsilegasta, bjart og opið og öll aðstaða til fyrirmyndar. Allir sem vilja skoða nýju húsakynnin, hitta starfsfólk eða fá upplýsingar umstarfsemi MSS eru hvattir til að kíkja við að Krossmóa 4, 3. hæð.

   

Til baka í fréttir