23. apríl 2010
Fornsögur Íslendinga lifna við á bókasafni Reykjanesbæjar
Íslendingasögurnar eru einn merkasti menningararfur Íslendinga og auk þess hin besta skemmtun í höndum góðra sagnamanna. Suðurnesjamenn hafa skartað nokkrum slíkum og í marsmánuði fór einn þeirra, Þorvaldur Sigurðsson, bókmenntafræðingur og kennari í FS, á kostum á bókasafni Reykjanesbæjar þar sem hann las Grettissögu með þátttakendum og kynnti þeim menningarheim sögunnar. Þátttakendur voru mjög sáttir við sitt, eða eins og einn þeirra orðaði það: „ Mér hefur aldrei þótt gaman að Íslendingasögum fyrr en nú. Þorvaldur er góður sagnamaður og fjölfróður og tengir söguna svo vel.“
Samstarf bókasafnsins, Þorvaldar og MSS mun halda áfram í haust þar sem ný saga úr arfi Íslendinga mun lifna við í höndum Þorvaldar. Hugsanlegt viðfangsefni verður Egla eða Laxdæla en það verður kynnt nánar með haustinu og einnig fyrirkomulag námskeiðsins. Þetta er ekki síst tækifæri fyrir íslenskukennara að safna góðum efniviði í sarpinn og eins fyrir alla sem hafa unun af góðum sögum og fjölfróðum sagnamönnum.
Á myndunum má sjá hluta af þátttakendum á Grettissögu og einnig Þorvald í ræðupúlti.