5. febrúar 2026

Fræðandi og innblásandi fyrirlestrar með Röggu Nagla

Fræðandi og innblásandi fyrirlestrar með Röggu Nagla

Í vikunni fengum við hjá Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum frábæra heimsókn þegar Ragga Nagli kom til okkar og hélt tvo vinsæla og áhrifaríka fyrirlestra. Fyrri fyrirlesturinn, Bestar á breytó, fjallaði um breytingaskeiðið og þær líkamlegu og andlegu breytingar sem því fylgja. Með húmor, hlýju og hreinskilni leiddi Ragga þátttakendur í gegnum helstu „leikreglur“ líkamans á þessu skeiði, veitti hagnýt ráð til að styrkja bæði líkamlega og andlega heilsu og lagði áherslu á mikilvægi jafnvægis í lífinu. Seinni fyrirlesturinn, Uppskrift að glimrandi geðheilsu, bauð upp á innsýn í einföld en öflug verkfæri sem styðja við betri geðheilsu og aukna vellíðan. Fyrirlesturinn sameinaði fræðslu, sjálfsþekkingu og hvatningu á aðgengilegan og hvetjandi hátt. Við erum afar þakklát fyrir heimsóknina og þá góðu umræðu, orku og innblástur sem Ragga færði hópnum.

Til baka í fréttir