29. mars 2010
Fullorðinsfræðsla fatlaðra
Eitt af markmiðum Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum er að fullorðinsfræðsla og símenntun sé aðgengileg öllum Suðurnesjamönnum. Fullorðnir fatlaðir höfðu um tíma ekki sama aðgang og aðrir að fullorðinsfræðslu en í samstarfi við Fjölmennt og aðra þá sem koma að þjónustu við fatlaða hefur MSS verið að vinna í að bæta þar úr. Á þessari önn hefur MSS m.a. staðið fyrir námskeiðum í lífstíl, matreiðslu og tölvu með skjólstæðinga Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra (SMFR) í huga og eftir páska verður farið af stað með íþróttanámskeið fyrir þann hóp.
MSS hefur tvívegis boðið upp á matreiðslunámskeið haldið í samstarfi við Þórunni Svövu Róbertsdóttur kennara starfsbrautar FS og námskeiðin verið svo vinsæl að það hafa færri komist að en vilja. Á myndunum sem hér fylgja má sjá ánægðan hóp matreiðslunema í eldhúsinu með kennurum sínum í lok námskeiðs og að taka við viðurkenningum fyrir þátttöku og góðan árangur.