26. október 2015

Fyrirlestur - Einhverfa og skipulögð kennsla

Fyrirlestur - Einhverfa og skipulögð kennsla

Þriðjudaginn 27. október næstkomandi kl. 13:00-14:00 verður Svanhildur Svavarsdóttir með fyrirlestur í Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum (MSS). Yfirskrift fyrirlestursins er „Einhverfa og skipulögð kennsla“ þar sem fjallað verður meðal annars um Skipulagða kennslu sem aðferð byggða á hugmyndafræði TEACHH. 

Svanhildur er talmeinafræðingur, sérkennari og sérfræðingur í boðskiptafræðum barna með einhverfu. Hún starfar nú í Arizona í Bandaríkjunum þar sem hún sinnir kennslu, ráðgjöf og uppbyggingu sérdeildar fyrir einhverfa. Svanhildur hefur áratuga reynslu af þessum málaflokki og er hafsjór af fróðleik um einhverfu. Fyrirlesturinn er opinn öllum þeim sem hafa áhuga. 

Ólöf Lárusdóttir stendur fyrir fyrirlestrinum með aðstoð Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. 

Til baka í fréttir