21. desember 2009
Fyrsti hópurinn Í Leikskólabrú útskrifast úr MSS
Það er ekki léttvæg ákvörðun að taka sig til eftir margra ára og jafnvel áratuga hlé og fara aftur í nám. Það gerði 13 manna hópur ófaglærðra starfskvenna af fimm leikskólum í Reykjanesbæ og Grindavík í janúar 2008 þegar hann hóf fjögurra anna nám í Leikskólabrú hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Þær mættu samviskusamlega, tvisvar í viku, eftir vinnu, fyrst á Skólaveginn og síðan í nýtt húsnæði MSS að Krossmóa, mættu þeim áskorunum sem námið fól í sér fram á kvöld, sinntu heimavinnu og öllu öðru.
Nám með vinnu er erfitt að stunda nema með dyggum skilningi og stuðningi fjölskyldumeðlima og fjölskyldur námsmannanna komu og nutu útskriftarinnar og áttu gleðistund með útskriftarnemunum núna í lok nóvember.
MSS óskar nemendum og fjölskyldum þeirra til hamingju með þennan stóra áfanga og þakkar fyrir gott samstarf og skemmtilegar samverustundir.
Það er Fræðslumiðstöð atvinnulífsins sem gerir símenntunarmiðstöðvunum kleift að bjóða upp á brúarnám og Leikskólabrúarhópurinn sem kvaddi í nóvember er sá fyrsti sem útskrifast af þessari námsleið hér á Suðurnesjum. Síðastliðið haust fór sambærilegt nám af stað fyrir félagsliða og ný Leikskólabrú fer væntanlega í gang næsta haust.
Á myndinni er flottur hópur útskriftarnema Leikskólabrúar ásamt forstöðumanni MSS og umsjónarmanni brúarnámsins.