16. september 2011
Góðar viðtökur á kynningarkvöldi MSS
Fjöldi fólks lagði leið sína á mjög vel heppnað kynningarkvöld hjá MSS sem var þann 15. september, þar sem kynning var á haustnámsskrá MSS og var fólk almennt ánægt með það sem í boði var. Fjórir aðilar voru dregnir úr happdrættispottinum og fengu þau Karen Ásta, Margrét, Ólafur Ingi og Laufey Svala gjafabréf að verðmæti 10.000 krónur hvert. MSS þakkar öllum sem heimsóttu okkur á þessu velheppnaða kvöldi.