17. desember 2010
Gunnar á Hlíðarenda mætir í munnlegt próf í Njálu
Ýmsar skemmtilegar uppákomur eru hjá MSS þessa dagana en þann 17 desember tók Guðlaugur Kristófersson, nemandi Menntastoða MSS, sig til og mætti í búningi Gunnars á Hlíðarenda í munnlegt próf úr Njálu. Hvað er betra til að koma sér í réttu stemninguna fyrir Njálu en að vera klæddur eins og kapparnir sjálfir. Samkvæmt Særúnu Ástþórsdóttur kennara þá var þetta skemmtileg tilbreyting og spurning hvort að þetta verður gert að kröfu á næstu önn. Á myndinni eru Særún Ástþórsdóttir kennari og Guðlaugur Kristófersson nemandi.