5. október 2009

Háskólinn á Hólum - Umsóknarfrestur fyrir vorönn

Umsóknarfrestur fyrir nám á vorönn í ferðamáladeild og fiskeldis- og fiskalíffræðideild við Háskólann á Hólum er 30. október.


Nám í boði:
Diplóma í ferðamálafræði (90 ects) – staðnám eða fjarnám
Diplóma í viðburðastjórnun (60 ects) – fjarnám
BA í ferðamálafræði (180 ects) – staðnám eða fjarnám
Diplóma í fiskeldisfræði (90 ects) – fjarnám


Nánar má lesa um námsbrautirnar á vef Háskólans á Hólum (www.holar.is) og þar eru umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar um inntökuskilyrði og fleira.


Ferðaþjónusta og fiskeldi eru atvinnugreinar sem eru í örum vexti og skortir fólk með góða menntun. Reynslan sýnir að skólinn útskrifar fólk sem getur tekið virkan þátt í uppbyggingu viðkomandi greina og því er óhætt að segja að námið gefi spennandi starfsmöguleika og fjölbreytta. Í skólanum fer fram umfangsmikið rannsókna- og þróunarstarf þannig að kennslan byggir á nýjustu upplýsingum og straumum sem í gangi eru hverju sinni.

Til baka í fréttir