25. ágúst 2010
Hraðlestrarnámskeið um helgina - 28. og 29. ágúst
Helgarnámskeið á vegum Hraðlestrarskólans dagana 28. og 29. ágúst kl. 12:00 - 16:00
Kennsla fer fram í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum - Krossmóum 4, 260 Reykjanesbæ
Fyrirkomulag: Hópurinn hittist þessa einu helgi í Reykjanesbæ. Á helgarnámskeiðinu fer kennari í gegnum grunntæknina, af hverju við lesum almennt svona hægt, hvernig hægt er að vel rúmlega tvöfalda lestrarhraða án þess að skilningur detti niður, af hverju lestrarskilningur og lestraránægja eykst við að lesa hraðar, skoðar lestur mismunandi lesefnis, leiðir að finna aðalatriði með skjótum hætti, grunnþætti þess að glósa markvissar og mismunandi glósuleiðir í vinnu eða námi, lestur af tölvuskjá eða lófatölvum, hvernig halda megi yfirsýn yfir mikið lesefni, leiðir að halda meiri einbeitingu í lestri jafnvel undir miklu álagi, leiðir að betri undirbúningi fyrir kennslustundir og fundi, þar eru einnig farið í gegnum mismunandi æfingar sem nota megi í framtíðinni, leiðir þannig þátttakendur inn í 3 vikna æfingakerfið og afhendir ítarleg námsgögn. - Sjá meiri upplýsingar um helgarnámskeið Hraðlestrarskólans á heimasíðu skólans www.h.is/sudurnes
Verð
Afsláttur er veittur fyrir þá sem skrá sig á námskeiðið í gegnum MSS. Almennt verð fyrir þá er 29.500 kr. (annars er verðið 34.500 kr.) Námsmenn greiða 23.500 kr í gegnum MSS (venjulegt verð fyrir námsmenn er 28.500 kr.) - skráning fer fram á www.h.is/sudurnes - neðst í skráningarferlinu er reitur fyrir afsláttarkóða sem veitir afslátt MSS. Til að fá afslátt á námskeiðið skrá þátttakendur bókstafina MSS í reitinn fyrir afsláttarkóða og fá þá afsláttarverðið.
Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar sérstaklega þeim er eiga erfitt með að sækja námskeið vikulega t.d. vegna búsetu eða mikils álags í vinnu eða námi. Farið er yfir nákvæmlega sama efni og á hinum hefðbundnu 6 vikna námskeiðum Hraðlestrarskólans.
Innifalið í námskeiðagjaldi
Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur (m.a. daglegir tímar fyrir fyrirspurnir á SKYPE og aðstoð í gegnum síma og netfang), aðgangur í gegnum vef að gögnum og æfingum á netinu, daglegar áminningar og fréttir af árangri og ýmis gullkorn sem hjálpa við nám og lestur í tölvupóstinum fyrstu 3 vikurnar, aðgangur að kennara og nemendavef eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf á.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Hraðlestrarskólanum í síma 773-0100 eða á www.h.is
____________________________________________________________________________________________________________
Hvernig á að lesa námsbók?
Dagsnámskeið - 30. ágúst kl. 16:00
Námskeiðið er beint framhald af hraðlestrarnámskeiði en nauðsynlegt er fyrir þátttakanda að hafa setið 3 eða 6 vikna hraðlestrarnámskeið eða helgarnámskeið Hraðlestrarskólans til að hafa not af þessu námskeiði.
Markmið námskeiðs:
Gera nemendum almennt kleift að takast á við hvaða hvaða námsefni sem er og vinna betur og markvissar úr því efni. Farið er í glósur, prófundirbúning, styrkleika í námi, undirbúning fyrir kennslustund o.fl. Nemandi notar sitt eigið námsefni og vinnur það heimanám sem honum hefur verið sett fyrir í skólanum - hann er því að slá tvær flugur - læra fyrir námskeiðið og læra fyrir skólann.
Á námskeiðinu lærir þú að:
• Glósa markvissar
• Spyrja lykilspurninga
• Finna aðalatriði í texta
• Gera greinarmun á aðalatriðum og aukaatriðum
• Ýta undir einbeitingu í lestri
• Vera virkari í þungum námslestri
• Forlesa efni með skýrari hætti
• Eftirlesa efni til að fylla upp í heildarmynd
• Hvernig þú átt að undirbúa þig fyrir kennslustund
• Hvernig þú átt að undirbúa þig og taka próf
• Greina hvernig þú lærir best
• Finna leiðir hvernig þú notar styrkleika þína betur í námi
• Finna veikleika þína í námi og leiðir að því að styrkja þá
Námskeiðsfyrirkomulag:
Kennslufyrirkomulag: 1 kennsludagur + fjarnám. Kennsludagur er mánudagurinn 30. ágúst
Kennari: Jón Vigfús Bjarnason - Skólastjóri Hraðlestrarskólans
Staðsetning: Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum - Krossmóum 4, 260 Reykjanesbæ
Tímasetning: 16:00 - 20:00
Fyrirkomulag: Hópurinn hittist einu sinni. Farið er í ýmsar tækniæfingar sem ætlað er að þjálfa tæknina og kennari fer síðan í gegnum efni er tengist lestri, glósutækni, námstækni og annað efni sem tengist námsbókalestri almennt. Þátttakandi fær í framhaldið aðgang að viðbótarefni á kennsluvef Hraðlestrarskólans.
Verð:
Almennt verð er 19.500 kr.
Skemmri helgi 1 - þ.e. bara Hraðlestur og Námsbók - þá er verð 14.500 kr. (almennt verð 44.000 kr. - Námsmenn - 38.000 kr.)
Innifalið í námskeiðagjaldi:
Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur (m.a. daglegir tímar fyrir fyrirspurnir á SKYPE og aðstoð í gegnum síma og netfang), vikulegar fréttir af árangri og ýmis gullkorn sem hjálpa við nám og lestur í tölvupóstinum, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf á.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Hraðlestrarskólanum í síma 773-0100 eða á www.h.is/sudurnes