16. ágúst 2011
Ísbrú félag tungumálakennara
Þann 10. og 11. ágúst hélt Ísbrú félag tungumálakennara námskeið hér í MSS. Námskeiðið bar yfirskriftina "jafn úti sem inni". Markmiðið var m.a. að kynna sér hvernig hægt er að lífga upp á tungumálakennslu með vettvangsferðum. Suðurnesin voru skoðuð og unnið var úr hugmyndum hér í MSS. Á myndinni má sjá hóp frískra kennara sem sóttu námskeiðið.