23. nóvember 2009

Íslendingasagnakvöld

Þriðjudagskvöldið 24. nóvember mun Þorvaldur Sigurðsson, íslenskukennari við FS, fjalla um Íslendingasögurnar og taka sérstaklega fyrir Hrafnkelssögu Freysgoða. Íslendingasögukvöldin eru hluti af verkefninu Kynning á bókamenntaarfinum sem almenningsbókasöfnin á Suðurnesjum og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum standa saman að.

Verkefnið er styrkt af Menningarráði Suðurnesja.

Þriðjudagskvöldið 24. nóvember kl. 20:00 - 22:00 í Álfagerði, Vogum. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Til baka í fréttir