12. mars 2010

Kynning á fjarnámi á háskólastigi

Kynning á fjarnámi í boði frá Háskólanum á Akureyri haustið 2010 verður hjá Miðstöð símenntunnar á Suðurnesjum fimmtudaginn 18. mars kl. 18:00-19:00.

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum er staðsett að Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ. Kynningin fer fram í gegnum myndfundabúnað.

Fjarnám í boði hjá HA er eftirfarandi:

• B.S. nám í iðjuþjálfunarfræði
• B.S. nám í hjúkrunarfræði (í boði á Símenntunarstöð Vesturlands, Akranesi)
• B.Ed. nám í kennarafræðum (leik- og grunnskólastig)
• B.S. nám í líftækni
• B.S. nám í sjávarútvegsfræði
• B.S. nám í umhverfis- og orkufræði
• B.S. nám í viðskiptafræði

Kynnt verður framboð og fyrirkomulag fjarnáms við HA og eru allir hvattir til að mæta sem eru að hugsa um fjarnám á háskólastigi. Háskólinn á Akureyri hefur verið leiðandi í uppbyggingu fjarnáms og spilað stórt hlutverk í að mennta fólk óháð búsetu. Fjarnámið fer fram í gegnum vefinn og með myndfundum, en að auki eru tölvusamskiptamiðlar nýttir til hins ýtrasta.

Kynntu þér spennandi valkost í háskólanámi. Umsóknarfrestur er til 5. júní .

Til baka í fréttir