26. janúar 2010
Kynning í Virkjun
Þriðjudaginn 2. febrúar kl. 13:00 verður haldin kynning í Virkjun á Google Apps, sem er frí samskipta- og samvinnuþjónusta frá Google.
Google Apps fyrir almenning (Standard Edition) inniheldur tölvupóst, dagatal, skjöl og vefsíður. Helstu kostirnir eru að Google Apps er aðgengilegt hvar sem maður kemst á netið, Standard útgáfan er frí fyrir almenning, hægt er að deila dagatölum og skjölum með öðrum og margir geta unnið í skjölum á sama tíma, ásamt því að mjög auðvelt er að gera vefsíður. Fólk getur haft netfang á eigin léni, t.d. jonsi@jonsi.is og geymslupláss fyrir tölvupóst er meira en gengur og gerist með frí netföng.
Kynningin er frí og öllum opin og tekur tæpa klukkustund.
Að kynningunni stendur Atmos ehf. sem er vottaður endursölu- og þjónustuaðili fyrir Google Apps. Frekari upplýsingar má sjá á vefnum: atmos.is
Þann 10. febrúar munu aðilar frá Atmos halda námskeið hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum þar sem fjallað verður ítarlega um hvenrig hægt er að nýta sér ótal kosti Google Apps. Annað námskeið er svo fyrirhugað þann 3. mars n.k. Fekari upplýsingar um námskeiðin má finna hér.