17. desember 2010
Landnemaskólinn útskrift
Í síðustu viku útskrifuðust 14 manns úr Landnemaskóla Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.
Um er að ræða fjölþætt nám fyrir útlendinga. Flestir nemendanna hafa búið á Íslandi í nokkurn tíma.
Kennslugreinar eru : íslenska, samfélagsfræði, lífsleikni, tölvunám, færnimappa og ferilskrá.
Á meðfylgjandi mynd eru nemendur Landnemaskólans ásamt kennurum og forstöðumanni MSS.
