4. nóvember 2009

Matti Osvald heilsufræðingur tíður gestur í MSS

Matti Osvald heilsufræðingur tíður gestur í MSS

Matti Osvald heilsufræðingur hefur verið með tvo fyrirlestar í MSS á þessari önn. Sá fyrri hét „Heilsa og hugarfar“ og tengdist heilsunni almennt en sá seinni hét „Hvað er málið með aukakílóin?“ og fjallaði um hagnýtar leiðir til að halda líkamanum í kjörþyngd. Mikil og góð þátttaka var á báðum fyrirlestrum Matta sem voru bæði fræðandi og skemmtilegir. Meðfylgjandi myndir voru teknar á seinni fyrirlestrinum.

Til baka í fréttir