25. október 2011

Menntastoðir vorönn 2012 - tækifærið bíður þín !

Menntastoðir vorönn 2012 -  tækifærið bíður þín !

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Menntastoðir vorönn 2012. Í Menntastoðum er boðið uppá þrjár mismunandi leiðir, staðnám, dreifinám og fjarnám. Helsti munurinn er sá að staðnám tekur um 6 mánuði og er kennt alla virka daga en dreifi- og fjarnám tekur 10 mánuði og er kvöld/helgarskóli með fjarnámssniði. Nemendur stunda þá námið að miklu leyti í gegnum netið en koma í staðlotur með vissu millibili. Athugið að ekki verður farið af stað með dreifinámshóp í janúar nema næg þátttaka fáist.

Námið er hugsað sem undirbúningur til áframhaldandi náms og miðar við háskólabrú Keilis og frumgreinadeildir við Bifröst, Háskólann á Akureyri og H.R. Nú þegar hafa 122 nemendur lokið fullu námi í Menntastoðum og um 80% þeirra hafið nám í Háskólabrú.

Helstu námsgreinar: Íslenska, stærðfræði, enska, danska, bókfærsla og tölvu- og upplýsingatækni. Nám í Menntastoðum kostar 110.000 kr. Hægt er að sækja um styrki hjá stéttarfélögum fyrir skólagjöldum eða gera námssamning við Vinnumálastofnun.

Hægt er að sækja um í gegnum netið á www.keilir.net eða í síma 412 5952.

Frekari upplýsinga veitir Særún Rósa Ástþórsdóttir
í síma 412 5952 eða í gegnum netfangið
saerunrosa@mss.is.

Til baka í fréttir