7. ágúst 2013

MSS fær viðurkenningu sem fræðsluaðili

MSS fær viðurkenningu sem fræðsluaðili

Mennta- og menningarmálaráðherra veitir MSS viðurkenningu sem fræðsluaðili

 
MSS hefur hlotið viðurkenningu frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem aðili til að annast framhaldsfræðslu á Íslandi. Viðurkenning þessi byggir á lögum um framhaldsfræðslu frá árinu 2010.
Viðurkenningin byggist á mati á aðstöðu til kennslu, skipulagi náms, námskrám, þekkingu, reynslu, fjárhagsmálefnum, tryggingum og gæðakerfi.
Að sögn Guðjónínu Sæmundsdóttur forstöðumanns MSS er þessi viðurkenning mjög ánægjuleg en þarna er verið að viðurkenna gæði og aðstöðu miðstöðvarinnar og þeirrar starfsemi sem fer fram hjá MSS.

Til baka í fréttir