10. maí 2016
MSS undirritar fræðslustjórasamning við Íslenska gámafélagið
MSS hefur undirritað samning við Íslenska gámafélagið um fræðslustjóra að láni.
Það eru fimm fræðslusjóðir og -setur sem koma að samningnum við Íslenska Gámafélagið um verkefnið fræðslustjóra að láni. Sjóðirnir eru Starfsafl, Landsmennt, SVS og VSSÍ ásamt IÐUNNI fræðslusetri.
Starfsmenn fyrirtækjasviðs MSS, Birna Vilborg Jakobsdóttir og Ragnheiður Eyjólfsdóttir munu sinna verkefninu.
Íslenska gámafélagið var stofnað árið 1999 og býður uppá alhliða umhverfisþjónustu til fyrirtækja, sveitarfélaga og einstaklinga. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Gufunesinu í Reykjavík en félagið er með starfsstöðvar vítt og dreift um landið. Hjá Íslenska gámafélaginu starfa 250 manns og er óhætt að segja að starfsmannahópurinn sé fjölbreyttur en þar sameinast 10 þjóðir á öllum aldri.
Mannauðsstefna fyrirtækisins sækir stuðning í heimspeki fisksins, Fish Philosophy, sem lýsir vilja fyrirtækisins til að vera framúrskarandi vinnustaður, þar sem metnaðarfullt starf er unnið af jákvæðu, samstilltu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis. Þess má geta að Íslenska gámafélagið er með gæðavottun ISO 14001 og ISO 9001 ásamt því að vera fyrst fyrirtækja á Íslandi að hljóta Jafnlaunavottun VR.