21. ágúst 2009

MSS útskrifar fyrstu nemendur úr Háskólastoðum

MSS útskrifar fyrstu nemendur úr Háskólastoðum

Þann 17. júlí var söguleg stund fyrir Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum en þá voru fyrstu nemendurnir útskrifaðir frá Háskólastoðum en jafnframt voru þetta fyrstu nemendurnir til að útskrifast í nýju húsnæði MSS að Krossmóum.
Námið í Háskólastoðum er byggt upp til 6 mánaða og er m.a. undirbúningur undir Háskólabrú Keilis. Námið er samstarfsverkefni Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum sem sér um alla daglega umsjón með náminu og Fræðslumiðstöðvar Atvinnulífsins og Keilis. Megin áhersla er lögð á sjálfseflingu, stærðfræði, íslensku, ensku og dönsku í náminu.
Útskriftarhópurinn er búinn að stunda námið síðan í febrúar og það var því kátur hópur sem fagnaði útskrift 17. júlí síðastliðinn og óhætt er að segja að hópurinn hafi verið orðinn langeygður eftir sumarfríi því hvert hitametið fell á eftir öðru á meðan prófum stóð.
Tveir nýir hópar eru nú farnir af stað í Háskólastoð þetta haustið, staðnámshópur og dreifinámshópur. Staðnámshópurinn sækir námið í dagskóla og lýkur námi í janúar 2010 en dreifinámshópurinn er með fjarnámssniði og mun ljúka sínu námi í júní 2010. Fjöldi umsókna fór fram úr björtustu vonum og eru hátt í 60 nemendur í Háskólastoð þetta haustið. 


Til baka í fréttir