1. júní 2010

Nám og starfsþjálfun hjá MSS

Nám og starfsþjálfun hjá MSS

Á dögunum útskrifaði MSS fyrsta hópinn sem fékk starfsþjálfun meðfram námi. Um er að ræða Leikskólakraft, nám sem byggir í grunninn á námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um fagnámskeið starfsmanna leikskóla, auk starfsþjálfunar. Námið er sniðið að þörfum ungs fólk sem hefur ekki reynslu af störfum á leikskólum og samanstendur af fyrirlestrum um uppeldi og ummönnun á ungum börnum og námskeiðum sem byggja upp almenna færni þátttakenda. Að auki fá þátttakendur starfsþjálfun inni á leikskólum þar sem þeir taka þátt í daglegu starfi og vinna verkefni tengd þjálfuninni. Markmið námsleiðarinnar er að búa þátttakendur undir ófaglærð störf í leikskólum.

Leikskólakraftur er 252 kennslustundir í heild og var unnið í samstarfi Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og Vinnumálastofnunar. Hugmyndin að náminu varð til í tengslum við átaksverkefnið Ungt fólk til athafna (UFTA) sem er liður í að virkja ungt atvinnulaust fólk til athafna. Það eru fleiri hópar í starfstengdu námi hjá MSS þessa dagana eins og í ferðaþjónustu og mun Miðstöðin halda áfram að bjóða upp á og þróa starfstengt nám.

MSS óskar þátttakendum í fyrsta Leikskólakrafti til hamingju með útskriftina og óskar þeim velfarnaðar inn í framtíðina.

Til baka í fréttir