27. júní 2011
Náms- og starfsráðgjafi óskast tímabundið
Náms- og starfsráðgjafi
Vegna barnsburðarleyfis leitar Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi í starf náms- og starfsráðgjafa a.m.k. fram til 31. desember 2012.
Meðal verkefna:
- Ráðgjöf
- Kennsla á námskeiðum
- Skipuleggja námskeið
- Mat á raunfærni
- Ýmis önnur verkefni
Umsóknarfrestur er til 10. júlí.
Vinsamlegast sendið upplýsingar um menntun, prófgögn og fyrri störf á netfangið ina@mss.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í gegnum tölvupóst (ina@mss.is) eða í síma 8633412.
***************************************************************************
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum er sjálfseignastofnun sem hefur sem markmið að efla endur- og símenntun á Suðurnesjum. Miðstöðin skal leitast við að greina þarfir fyrir fræðslu á þjónustusvæði sínu og einbeita sér jafnt að atvinnulífinu sem og einstaklingum.