27. maí 2025
Námskynningar í Samvinnu starfsendurhæfingu
Í morgun kom Linda verkefnastýra í MSS í heimsókn og hélt kynningu fyrir þátttakendur í Samvinnu starfsendurhæfingu. Hún fór yfir spennandi námsleiðir og fjölbreytt námskeið sem verða í boði hjá MSS í haust. Kynningin gaf þátttakendum innsýn í þau tækifæri sem standa til boða til að efla færni sína og auka möguleika sína á vinnumarkaði eða í frekara námi. Það er alltaf spennandi að sjá hversu margt stendur til boða – haustið lofar góðu!