22. febrúar 2010
Norskunámskeið
Mikil eftirspurn hefur verið eftir byrjendanámskeiðum í norsku hjá MSS að undanförnu í samhengi við alla þá Íslendinga sem nú leita til Noregs eftir atvinnu. Í febrúar lauk hraðnámskeiði sem var sett af stað fyrir íslenska pípulagningamenn sem eru flestir starfandi í Noregi en komu til landsins í stutt stopp. Á myndinni má sjá hluta af þeim hóp með kennara sínum Kristínu Benediktsdóttur, en sumir þátttakendanna eru nú þegar flognir aftur til Noregs. Nokkrir einstaklingar sem ekki tilheyra hópnum nýttu tækifærið og lærðu norsku með pípulagningarmönnunum. Það er annað norskunámskeið farið af stað hjá MSS nú þegar og þau verða haldin áfram eftir því sem þörfin segir til um.