26. maí 2014

Ný heimasíða MSS í loftið

Ný heimasíða MSS í loftið

MSS hefur í samstarfi við Dacoda sett nýja heimasíðu í loftið. Það var kominn tími á að hressa aðeins uppá vefinn hjá okkur og því var farið út í að setja upp vef sem skilar sínu, hvort sem er í borðtölvum, spjaldtölvum eða snjallsímum. Eins og segir í laginu sem við þekkjum öll Tíminn líður hratt á gervihnattaöld... -og tækninni fleygir fram sem aldrei fyrr. Starfsfólk MSS vonar að vefurinn falli í kramið hjá viðskiptavinum og þeir geti notið hans jafnt heima fyrir sem á ferðinni og í hvaða tækjum sem er. 

Til baka í fréttir