15. nóvember 2010
Nýr hópur tekinn inn í fjarnám í hjúkrunarfræði haustið 2012
Deildarráð heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri hefur ákveðið að haustið 2012 muni verða tekinn inn hópur á Suðurnesjum í hjúkrunarfræði. Tveir hópar hafa verið útskrifaðir hingað til og er sá þriðji í námi núna og mun útskrifast vorið 2013. Gott tækifæri er fyrir þá sem huga á þetta nám að nýta tímann og undirbúa sig vel.
