29. mars 2010

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Háskólastoðir

Háskólastoðir er einnar annar nám unnið í samstarfi Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs.

Markmið Háskólastoða er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni. Í náminu er lögð áhersla á að nemendur læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námið í Háskólastoðum tekur um 6 mánuði ( staðnám) eða 10 mánuði (dreifinám) og gefur um 50 einingar. Munurinn á staðnámi og dreifinámi felst í því að staðnámið er dagskóli fimm daga vikunnar en dreifinámið er kvöld/helgarskóli með fjarnámssniði.

Helstu námsgreinar eru stærðfræði, íslenska, upplýsingatækni, enska og danska. Kennsluhættir Háskólastoða miða við þarfir fullorðinna nemenda og leitast er við að veita nemendum góða þjónustu. Þannig skipa sjálfsefling, námstækni og hópefli stóran þátt í skólastarfinu. Hluti kennslu í Háskólastoðum byggist á tölvum og því er nemendurm ráðlagt að verða sér út um fartölvu með Office 2007 hugbúnaði.

Nám í Háskólastoðum kostar 104.000 kr. Hægt er að sækja um styrki hjá stéttarfélögum fyrir skólagjöldum. Jafnframt styrkir Vinnumálastofnun þá nemendur sem eru án atvinnu, eftir að gengið hefur verið frá námssamningi. Námssamning við Vinnumálastofnun þarf að gera áður en nemandinn hefur námið.

Greiða þarf námið fyrirfram, eigi seinna en 2 vikum áður en að nám hefst. Nánari upplýsingar um greiðslufyrirkomulag námsins fæst hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, www.mss.is. eða í síma 421 7500.

Nemendur sem ljúka námi í Háskólastoðum eiga kost á því að sækja um nám á Háskólabrú Keilis. Nám í Háskólabrú er lánshæft hjá LÍN, með þeim skilyrðum að námsmaður hafi áður lokið lánshæfu starfsnámi, þ.e. burtfararprófi / sveinsprófi úr skóla, eða hafi jafngilda reynslu úr atvinnulífinu, þ.e. starfsreynslu sem samsvarar fullri atvinnuþátttöku í a.m.k. fimm ár. ( sjá nánar á www.lin.is).

Nám í Háskólstoðum hefst 9. ágúst 2010, staðnám, en 13.ágúst í dreifinámi. Skráning í námið er hafin og er umsóknarfrestur til 15. maí.

Skráning fer einungis fram á vefslóðinni www.keilir.net.


Nánari upplýsingar má nálgast hjá Hjörleifi Hannessyni í síma 421-7500

Til baka í fréttir