12. október 2021

Pólsku- og íslenskumælandi verkefnastjóri

Pólsku- og íslenskumælandi verkefnastjóri

MSS óskar eftir öflugum og metnaðarfullum verkefnastjóra til starfa. Um er að ræða tímabundna ráðningu til 12 mánaða. Verkefnastjórinn er hluti af MSS teyminu sem skipuleggur og heldur utan um nám fyrir íbúa og fyrirtæki á Suðurnesjum. Verkefnastjórinn mun sinna sérstaklega námi fyrir nemendur sem hafa ekki íslensku sem móðurmál.

Við leitum að einstaklingi sem á auðvelt með að vinna í teymi, er jákvæður, skapandi, getur hugsað í lausnum og hefur áhuga á skólaþróun og kennslufræði.

Helstu verkefni
• Skipulag og framkvæmd námsskeiða
• Samskipti við nemendur
• Þróun kennsluhátta
 
Hæfnikröfur
• Góð íslensku- og pólskukunnátta 
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði, sveigjanleiki og skipulagshæfni í vinnubrögðum
• Góð tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
• Færni í teymisvinnu
 
 
Nánari upplýsingar veitir Guðjónína Sæmundsdóttir, forstöðumaður, á netfangið ina@mss.is
 
Umsóknum skulu fylgja starfsferilskrár og kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2021.

Til baka í fréttir