15. desember 2009

Prófatíð hjá MSS

Prófatíð hjá MSS

Desembermánuður er tími jólaprófanna í skólum landsins. Þessa dagana sitja nemendur MSS yfir skólabókunum og þreyta próf. Það eru um 150 nemendur á framhalds- og háskólastigi sem taka próf hjá MSS núna í desember.

Þeir sem stunda nám á framhaldsskólastigi eru í námi hjá MSS en þeir sem eru á háskólastigi stunda nám við háskóla landsins en nýta sér aðstöðu til námsins hjá MSS. Að auki hafa fjölmargir nemendur útskrifast úr styttri námsleiðum á unanförnum vikum.

Meðfylgjandi er mynd af einbeittum nemendum í prófi. 

Til baka í fréttir