19. mars 2010
Rithöfundanámskeið
Nú á vorönninni hefur 10 manna hópur verið á 30 kennslustunda námskeiði hjá MSS sem heitir Ræktaðu rithöfundinn í þér. Á námskeiðinu lærðu þátttakendur margt gagnlegt þegar kemur að því að þróa með sér hæfileikann að skrifa. Þeir lærðu m.a. að nota skissubækur og hugmyndamöppur við skrif og hugmyndaöflun. Einnig tækni til að þróa tilfinningu fyrir umhverfinu og „að taka eftir því sem maður tekur eftir“. Þá var farið í það sem kallast frelsisskrif til almennra skrifa og sem meðal við ritstíflu. Þá lærðu þátttakendur um persónusköpun á aðalpersónu og hugmyndir að aukapersónum, um sjónarhorn og tíð, sköpun og/eða val á söguumhverfi skrifað út frá öllum skilningarvitum.
En það var ekki einungis farið í sjálf skrifin heldur allt ferlið við að koma hugmynd á blað yfir í að koma henni út á bók, þ.e. hvernig heildaruppbygging sögu eða bókar fer fram, notkun söguskema, sögufléttna/ þráða og samtala, uppsetningu rithóps, lokafrágang og útgáfu.
Allir þátttakendur námskeiðsins luku því með vel mótaða hugmynd að smásögu eða bók í fullri lengd, þeir skrifuðu parta af sögunni og tóku með sér þau tæki sem til þarf til að ljúka verkinu. Kennari á námskeiðinu var Unnur Svava Sverrisdóttir og hún sagði hópinn hafa verið frábæran og frjóan. Þátttakendur sjálfir voru mjög ánægðir með námskeiðið og sögðu m.a. hafa upplifað nýjar hliðar á skrifum, kynnst betur skáldinu í sjálfum sér og fengið góð verkfæri til að takast á við ritstíflu.