4. janúar 2010

Samstarf MSS og Eimskips

Samstarf MSS og Eimskips

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum vinnur nú að verkefni með Eimskip þar sem Birna Vilborg Jakobsdóttir ráðgjafi atvinnulífs hjá MSS vinnur tímabundið verkefni á sviði starfsmanna- og fræðslumála innan fyrirtækisins. Það eru fræðslu- og starfsmenntunarsjóðirnir Starfsafl, Landsmennt og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS) sem standa að verkefninu og „lána“ fræðslustjóra til fyrirtækisins. Samningurinn nær til um samtals 500 starfsmanna Eflingar, verkalýðsfélaga á landsbyggðinni og VR/LÍV hjá Eimskip. Þó fyrst og fremst sé litið til fræðsluþarfa þessara starfsmanna þá nær starf fræðslustjórans til alls fyrirtækisins. Eimskip er eitt stærsta fyrirtæki landsins með um 750 starfsmenn á Íslandi.

Fræðslustjórinn mun á næstu vikum og mánuðum vinna með starfsmönnum fyrirtækisins og gera þarfagreiningu á fræðslumálum fyrirtækisins og koma með tillögur að úrbótum og fræðslu.

Elín Hjálmsdóttir, starfsmannastjóri Eimskips, lýsti yfir mikilli ánægju með samninginn. Eimskip hefur langa og góða sögu í fræðslumálum og lítur á verkefnið sem upphaf að nýjum landvinningum á sviði starfsmenntamála innan fyrirtækisins. „Fræðslustjóri að láni" er mikilvægt verkfæri til að stuðla að markvissri uppbyggingu mannauðs í fyrirtækinu og tryggja að sú fræðsla sem valin verður, muni koma bæði starfsmönnum og fyrirtækinu að notum og auka samkeppnishæfi þess.

Fræðslustjóri að láni er heiti verkefnis sem Starfsafl hefur boðið fyrirtækjum síðan í lok árs 2008. Fræðslustjórinn er venjulega sjálfstæður mannauðsráðgjafi sem fer í boði fræðslusjóðanna inn í fyrirtæki í tiltekinn tíma og aðstoðar þau við greiningu á þörfum fyrir fræðslu, lyftir upp þeirri fræðslu sem þegar er í fyrirtækinu og bendir á leiðir til auka fræðslu í framhaldi af greiningunni. Þessi símenntunaráætlun er síðan grunnur að fræðslustarfi viðkomandi fyrirtækis í lengri eða skemmri tíma. Verkefnið hefur mælst vel fyrir meðal fyrirtækja og starfsmanna þeirra.

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér betur verkefnið Fræðslustjóri að láni eða kanna möguleika fyrirtækja til að taka þátt í slíku verkefni geta haft samband við Birnu V. Jakobsdóttur hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, sími 421 – 7500, tölvupóstur: birna@mss.is eða haft samband við Starfsafl starfsmenntunarsjóð.

   

  

 
      
  
  
 
 
Á myndinni má sjá samstarfsaðila verkefnisins frá Eimskip, MSS og fulltrúar sjóðanna sem standa að verkefninu.

Til baka í fréttir