16. febrúar 2011

Skemmtilegt námskeið í leðurtöskugerð

Skemmtilegt námskeið í leðurtöskugerð

Frábært námskeið í leðurtöskugerð var haldið hjá okkur í Krossmóa dagana 11. og 12. febrúar og vakti það mikla lukku og var útkoman frábær hjá þátttakendum. Leiðbeinandi var Kolbrún Sveinsdóttir kjóla- og klæðskerameistari. Fyrirhuguð eru fleiri námskeið í Grindavík eru dagana 18. og 19. febrúar og 11. og 12. mars nánari upplýsingar eru í síma 412-5967 / 412-5940. Á myndinni má sjá afrakstur þátttakenda einnig er hægt að sjá fleiri myndir á facebook síðu okkar MSS.

  

Til baka í fréttir