24. mars 2011

Skráning hafin í Menntastoðir

Menntastoðir er nám unnið í samstarfi Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs.

Námið í Menntastoðum tekur um 6 mánuði ( staðnám) eða 10 mánuði (dreifinám) og metur Keilir námið til 50 eininga. Munurinn á staðnámi og dreifinámi felst í því að staðnámið er dagskóli fimm daga vikunnar en dreifinámið er kvöld/helgarskóli með fjarnámssniði.
Helstu námsgreinar eru: stærðfræði, íslenska, enska og námstækni.
Nám í Menntastoðum kostar 110 .000 kr. Hægt er að sækja um styrki hjá stéttarfélögum fyrir skólagjöldum. Jafnframt styrkir Vinnumálastofnun þá nemendur sem eru án atvinnu, eftir að gengið hefur verið frá námssamningi.

Staðnám
Staðnám Menntastoða hefst mánudaginn 15. ágúst 2011. Staðnámið er tæplega 6 mánaða langt nám og lýkur með útskrift 13. janúar 2012. Kennt er alla virka daga frá klukkan 8:30 til 15:10.

Námið er einnig kennt í Grindavík ef næg þátttaka næst.

Dreifinám
Dreifinám Menntastoða er nám í 10 mánuði og verður kennt frá klukkan 15:00 til 20:30 alla miðvikudaga og frá 09:00 til 16:30 tvo laugardaga í mánuði. Námið er með fjarnámssniði, þ.e.a.s. heimaverkefni og tímaverkefni verða leyst í fjarnámi en nemendur mæta í skólann til að fá innlögn frá kennurum.
Skólasetning verður föstudaginn 12. ágúst 2011.

Námið er einnig kennt í Grindavík ef næg þátttaka næst.

Smellið  HÉR  til að fara á skráningasíðu. 


Nánari upplýsingar má nálgast hjá Hjörleifi Hannessyni í síma 412-5953

Til baka í fréttir