19. ágúst 2011

Skrifstofuskóli II opið fyrir skráningu

Skrifstofuskóli II opið fyrir skráningu

Skrifstofuskólinn II opið fyrir skráningu.
MSS útskrifaði í vor 15 námsmenn úr námskeiðinu Skrifstofuskólinn II.  Almenn ánæga var með námskeiðið.
Nú er opnað fyrir skráningu í Skrifstofuskólann II að nýju og mun hann hefjast um leið og næg þátttaka fæst.
Markmið Skrifstofuskólans II er að að auka færni þátttakenda í bókfærslu og er lögð áhersla á hagnýtingu bókhalds í rekstri fyrirtækja. Einnig verður farið í upplýsingatækni og skatta eins og það kemur til með að gagnast þeim sem vinna við bókhald. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu með grunnþekkingu á bókhaldi áður en námskeiðið hefst,  eða hafi lokið Skrifstofuskóla I.
Helstu fög sem kennd verða: Tölvubókhald, Excel, skattskil og tollskýrslugerð.  Hægt verður að taka einstaka námskeið. Á myndinni má sjá útskriftahóp frá vor 2011. 

Til baka í fréttir