28. september 2009

Skrifstofuskólinn og Sterkari starfsmaður

MSS fer í október af stað með tvær námsleiðir sem nefnast Skrifstofuskólinn og Sterkari starfsmaður - upplýsingatækni. Í Skrifstofuskólanum er megináhersla á  tölvu- og upplýsingatækni, bókhald, verslunarreikning og ensku auk þjónustu og samskiptaáfanga. Námsleiðin Sterkari starfsmaður gefur góðan grunn í tölvu- og upplýsingatækni. Þar er farið í  öll helstu tölvuforrit auk þess em áhersla er lögð á sjálfstyrkingu, frumkvæði og eflingu í starfi auk annarra þátta.


Umsóknafrestur er til 1. október n.k. og fer skráning fram hjá MSS í síma 421 - 7500. Þeir sem eru í atvinnuleit geta sótt námskeiðin sér að kostnaðarlausu.

Til baka í fréttir