6. janúar 2022

Sóttvarnir á vorönn

Sóttvarnir á vorönn

Gleðilegt nýtt ár. Nú fer ný önn senn af stað og því miður virðist Covid síður en svo vera á undanhaldi. Við munum samt halda inn í nýja önn full bjartsýni og stefnum ótrauð áfram inn í vorið.

Eins og staðan er í dag þá verður kennslan áfram með sama sniði og verið hefur, kennt verður samkvæmt stundaskrám en vissulega má búast við einhverjum truflunum á kennslu vegna þeirra fjölda smita sem greinast nú á hverjum degi og snerta okkur flest á einhvern hátt.

Í ljósi núverandi takmarkana þá gilda eftirfarandi sóttvarnir í húsnæði MSS:
• Grímuskylda er í öllum sameiginlegum rýmum í húsnæði MSS.
• Í kennslustofum gildir 1 m regla milli nemenda, sé ekki unnt að viðhafa fjarlægðarmörk skal bera grímu.
• Hámarksfjöldi er 50 í hverju rými.
• Viðhalda stífum persónubundnum sóttvörnum á meðan dvalið er í húsnæði MSS.
• Sótthreinsa sameiginlega snertifleti eins og á kaffivél, sjálfsala og annað sem við deilum fyrir og eftir notkun.
• Spritta hendur oftar en sjaldnar.

Ef þið eruð með kvefeinkenni eða Covid-lík einkenni að vera heima og fara í skimun.
Þar sem MSS sér um smitrakningu innan skólans er nauðsynlegt að kennari, nemandi eða aðrir sem koma í húsnæði MSS og reynast Covid smitaðir tilkynni það strax á netfangið sigridur@mss.is

Ég óska ykkur góðs gengis og hlakka til samstarfsins á komandi önn,
Guðjónína Sæmundsdóttir, forstöðumaður MSS.

Til baka í fréttir