5. október 2010
SSS býður á námskeið - Gerð viðskiptaáætlana
MSS og Frumkvöðlasetrið á Ásbrú standa saman að opnu námskeiði í gerð viðskiptaáætlana. Námskeiðið er í boði Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Á námskeiðinu er farið í uppbyggingu viðskiptaáætlunar, hvernig skal útbúa viðskiptaáætlun, hvaða atiði slík áætlun þarf að innihalda og hvað mikilvægt er að hafa í huga og hvað skal forðast. Þátttakendur vinna að sinni eigin viðskiptaáætlun á námskeiðinu og geta fengið leiðsögn og aðstoð við þá vinnu.
Námskeiðið fer fram dagana 11., 14. og 18. október frá kl. 17:00 til 20:00.
Námskeiðið er í boði Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem greiðir allan námskeiðskostnað þátttakenda. Hér er því um einstakt tækifæri að ræða, takmarkað pláss er á námskeiðið.
Námskeiðið er í samstarfi við Frumkvöðlasetrið á Ásbrú og fer fram í húsnæði þeirra, Eldey að Grænásbraut.
Hægt er að skrá sig á námskeiðið með því að smella hér