19. júní 2025
Starfsmenn Hótels Keflavík útskrifast úr meðferð matvæla
Þann 10. júní útskrifaðist vaskur hópur starfsmanna Hótels Keflavík úr námsleiðinni Meðferð matvæla. Námið er 60 kennslustundir og stuðlar að því að auka gæði og öryggi í meðhöndlun matvæla. Flestir þátttakendur eru að vinna við matreiðslu og eru þar greinilega miklir fagmenn á ferð. Við í Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum óskum Hótel Keflavík og starfsfólki til hamingju með þetta flotta framtak sem er til fyrirmyndar.