9. desember 2010
Starfsmenntaverðlaunin 2010
Þann 8.desember s.l. hlautu Kaffitár og Starfsafl Starfsmenntaverðlaunin 2010. Verðlaunin hlautu þau fyrir samstarfsverkefnið Fræðslustjóri að láni. Verðlaunin eru Kaffitári örugglega hvatning til að halda áfram á sömu braut og vinna áfram að verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun starfsmanna sinna eins og fyrirtækið hefur gert með glæsibrag undanfarin ár.
Að verkefninu Fræðslustjóri að láni hjá Kaffitári komu Birna Jakobsdóttir hjá Miðstöð Símenntunnar á Suðurnesjum og Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir frá Attentus.
Lesa má nánar um verkefnið Fræðslustjóri að láni á heimasíðu Starfsafls www.starfsafl.is/fraedslustjori_ad_lani/. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá Birnu hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Tilgangur Starfsmenntaverðlaunanna er að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi ásamt því að vekja athygli á málefninu. Verðlaunin eru verðlaunahöfum hvatning til áframhaldandi starfa og öðrum til fyrirmyndar á þessu sviði.
MSS óskar Kaffitár og Starfsafli innilega til hamingju með verðlaunin.