8. apríl 2011
Stofnun og rekstur smáfyrirtækja - Námskeið í boði SSS
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum býður áhugasömum á námskeiðið Stofnun og rekstur smáfyrirtækja. Námskeiðið er ætlað þeim sem búa yfir viðskiptahugmynd og hafa hug á því að stofna í kringum hana fyrirtæki. Námskeiðið er jafnframt ætlað þeim sem stofnað hafa fyrirtæki nýlega og vilja auka rekstrarþekkingu sína. Fjallað er um nauðsynleg atriði er að huga þarf að áður en fyrirtæki eru stofnuð, t.d. fyrirtækjaform, viðskipta- og rekstraráætlanir,
arðsemiskröfur eigenda/fjárfesta, færslu bókhalds, ábyrgð stjórnenda og eigenda og skattamál.
Námskeiðið er tvö skipti, kennt er 3. og 5. maí frá kl 17:00 - 20:00.
Leiðbeinandi: Haukur Skúlason, hagfræðingur (M.Sc.) hjá LS Finance
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu en nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið.