28. janúar 2011
Útskrift hjá Menntastoðum
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum útskrifar nemendur úr Menntastoðum
Föstudaginn síðasta, 21.01, útskrifaði Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum 28 nemendur úr Menntastoðum. Að þessu sinni útskrifuðust nemendur frá tveimur hópum, 16 úr staðnámi og 12 úr dreifinámi.
Menntastoðir eru samstarfsverkefni MSS sem sér um alla daglega umsjón með náminu og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Keilis. Meginmarkmið Menntastoða er að vera undirbúningsnám á framhaldsskólastigi fyrir Háskólabrú Keilis, en jafnframt er haft að leiðarljósi að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni, sama hvert þeir stefna.
Í dag bíður MSS upp á þrjár námsleiðir í Menntastoðum, staðnám sem er 6 mánaða langt nám, dreifinám og fjarnám sem hvort tveggja er 10 mánaða langt nám. Fjarnám er nýjasta námsleiðin í Menntastoðum og fór af stað í janúar með tæplega 20 nemendum. Fjarnámið er byggt upp á einni vinnuhelgi í mánuði en annars stunda nemendur námið í gegnum internetið.
Alls stunda nú 79 nemendur nám í fjórum hópum Menntastoða.
Menntastoðir sem fagna 2 ára afmæli sínu nú í febrúar, hafa frá upphafi útskrifað 90 manns úr fullu námi úr Menntastoðum og hafa flestir haldið áfram frekara framhaldsnámi.
MSS óskar útskriftarnemum til hamingju með áfangann og óskar þeim velfarnaðar í áframhaldandi námi.
Myndir: Á myndunum má sjá útskriftarhópana tvo ásamt Guðjónínu Sæmundsdóttur forstöðumanni MSS og Hjörleifi Þ. Hannessyni umsjónarmanni Menntastoða.