19. desember 2011

Útskrift hjá Samvinnu

Útskrift hjá Samvinnu

Glæsilegur hópur hjá Samvinnu starfsendurhæfingu  útskrifaðist með glæsibrag sl. föstudag þann 16. desember. Námið er í þrjár annir og er í samstarfi við MSS. Núna hafa 5 hópar útskrifast hjá Samvinnu og gaman að geta þess að einstaklingar sem hafa stundað námið hafa náð góðum árangri og sumir haldið áfram í námi, farið í vinnu eða önnur úrræði.  Á myndinni má sjá útskriftarnema ásamt Gerði Pétursdóttur forstöðukonu Samvinnu sem er efst lengst til vinstri, Birnu Guðmundsdóttur ráðgjafa hjá Samvinnu sem er efst lengst til hægri og Guðjónínu Sæmundsdóttur forstöðukonu MSS sem er neðst fyrir miðju. Til hamingju með áfangann.

 

Til baka í fréttir