6. desember 2011

Útskrift úr Grunnmenntaskóla MSS

Útskrift úr Grunnmenntaskóla MSS

Þann 5. desember lauk 12 vikna tímabili hjá þeim sem stunduðu nám við Grunnmenntaskóla MSS.   Tilgangur skólans er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni í vinnu og námi. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni.Nám í Grunnmenntaskóla má meta allt að 18 einingum á framhaldsskólastigi. Kennt var eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Á myndinni eru nemendur og leiðbeinendur ásamt Kristni Jakobssyni verkefnastjóra.

Til baka í fréttir