1. desember 2011
Útskrift úr Hljóðsmiðju
MSS hefur undanfarnar 5 vikur keyrt námskeiðið Hljóðsmiðju í samstarfi við upptökuverið Geimstein. Á námskeiðinu var farið í gegnum grundvallaratriði hljóðvinnslu og veitt innsýn inn í heim hljóðmannsins, hvort sem er starfsmanns í upptökuveri eða sem hljóðmanns í leikhúsi, útvarpi, sjónvarpi eða við lifandi tónlistarflutning.
Nemendur á námskeiðinu er lærðu að taka upp talmál og tónlist, klippa upptöku, laga galla í upptöku og búa til flutnings í viðeigandi hljómflutningsbúnaði.
Föstudaginn síðasta, 25. nóvember útskrifaðist hópurinn og var hann ánægður með afraksturinn, tekin voru upp um 10 lög, þau hljóðblönduð og unnin til flutnings og nú fer að líða að fyrstu plötuútgáfu MSS !