6. ágúst 2010

Verkefnastjóri óskast

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum óskar eftir að ráða til sín verkefnastjóra í fullt starf.

Í boði er spennandi og krefjandi starf við skipulagningu og þróun á námskeiðum fyrir einstaklinga og atvinnulíf hjá MSS.
Starfsmaðurinn mun m.a.sjá um að þróa námsleiðir sem fela í sér starfsþjálfun í fyrirtækjum.

Menntunar og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Góð tengsl við atvinnulífið
• Metnaður, áhugi og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

Upplýsingar um starfið veitir Guðjónína Sæmundsdóttir, forstöðumaður MSS í síma 421-7500 og 863-3412. Umsóknir sendist til Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum, Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ eða ina@mss.is fyrir 22. ágúst.

***********************************************************************************************
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum er sjálfseignastofnun sem hefur sem markmið að efla menntunarstig á Suðurnesjum. Starfsemi miðstöðvarinnar skal miðast við að auka starfshæfni og vellíðan einstaklinga. Miðstöðin skal leitast við að greina þarfir fyrir fræðslu á þjónustusvæði sínu og einbeita sér jafnt að atvinnulífinu sem og einstaklingum.

Til baka í fréttir