MSS býður upp á íslenskunámskeið á stigum 1–5 sem byggja á námskránni Íslenska fyrir útlendinga, sem gefin er út af menntamálaráðuneytinu. Námskeiðin eru skipulögð með það að markmiði að efla málfærni þátttakenda og styðja við virka þátttöku í samfélagi, námi og starfi.
Í boði er íslenskukennsla fyrir bæði byrjendur og lengra komna, þar sem tekið er mið af ólíkum forsendum, reynslu og markmiðum þátttakenda.
Einnig bjóðum við upp á starfstengd íslenskunámskeið fyrir fyrirtæki, þar sem áhersla er lögð á starfstengdan orðaforða.

19. maí 2026
Íslenskunámskeið MSS býður upp á íslenskunámskeið fyrir byrjendur sem og lengra komna, því er um einstaklingsmiðað nám að ræða. Markmiðið er að bjóða upp á íslenskunámskeið út frá getu hvers og eins. Á íslenskunámskeiðunum verður áhersla lögð á skilning, talað mál, ritun, hlustun, lestur og málfræði.MSS sendir upplýsingar um námskeið í tölvupósti á nemendur, nokkrum dögum áður en námskeið hefst.Námskeið fer af stað þegar lágmarksþátttaka næst. MSS áskilur sér þann rétt að færa til og breyta dagsetningum og tímasetningum ef þörf er á.Nauðsynlegt er að vera með að lágmarki 80% mætingu til að fá útskriftarskírteini í lok námskeiðs.Ef námskeið er greitt af fyrirtæki/stofnun eða viðkomandi á rétt á styrk vegna námskeiðisgjalda þarf að láta MSS vita við skráningu.Ef þú finnur ekki námskeiðið sem hentar þér, endilega hafðu þá samband við okkur. Kristín og Dianaicelandic@mss.is / 421 7500
Hæfniviðmið í íslensku út frá evrópska tungumálarammanum
59.500 kr.
Á námskeiðunum er lögð áhersla á blandaða íslenskukennslu þar sem farið er yfir skilning og talað mál auk ritunar, hlustunar og lesturs. Þar að auki er málfræði fléttuð inn í námsefnið miðað við hæfni og getu hópsins.
Reynt er að aðlaga námsefni, framsetningu og framvindu námsins að forsendum þátttakenda. Fjölbreyttum aðferðum er beitt í tungumálanáminu til að koma til móts við fjölbreyttan nemendahóp. Með fjölbreyttum aðferðum er átt við, einstaklings-, para- og hópvinnu, aukaefni, leiki, spil og fleira.
Markmiðið er að efla persónulega færni, félagslega færni og í kjölfarið starfshæfni. Nauðsynlegt er að nota fjölbreyttar aðferðir til að þjálfa samskipti og hvetja nemendur til að æfa sig í að tjá hugsanir, skoðanir og tilfinningar. Nemendur þjálfast einnig í að skipulagðri frásögn til að æfa framburð.
Nauðsynlegt er að vera með að lágmarki 80% mætingu til að fá útskriftarskírteini í lok námskeiðs.
Námskeið fer af stað þegar lágmarksþátttaka næst. MSS áskilur sér þann rétt að færa til og breyta dagsetningum og tímasetningum ef þörf er á.
Ef námskeið er greitt af fyrirtæki/stofnun eða viðkomandi á rétt á styrk vegna námskeiðisgjalda þarf að láta MSS vita við skráningu.
Nánari upplýsingar veita:
Kristín og Díana / icelandic@mss.is / 421-7500