Íslenska fyrir lengra komna

Íslenskunámskeið 

MSS býður upp á íslenskunámskeið fyrir byrjendur sem og lengra komna, því er um einstaklingsmiðað nám að ræða. Markmiðið er að bjóða upp á íslenskunámskeið út frá getu hvers og eins. 

Á íslenskunámskeiðunum verður áhersla lögð á skilning, talað mál, ritun, hlustun, lestur og málfræði.

 

MSS sendir upplýsingar um námskeið í tölvupósti á nemendur, nokkrum dögum áður en námskeið hefst.

Námskeið fer af stað þegar lágmarksþátttaka næst. MSS áskilur sér þann rétt að færa til og breyta dagsetningum og tímasetningum ef þörf er á.

Nauðsynlegt er að vera með að lágmarki 80% mætingu til að fá útskriftarskírteini í lok námskeiðs.

 

Ef námskeið er greitt af fyrirtæki/stofnun eða viðkomandi á rétt á styrk vegna námskeiðisgjalda þarf að láta MSS vita við skráningu.

 

Ef þú finnur ekki námskeiðið sem hentar þér, endilega hafðu þá samband við okkur. 

Kristín og Diana

icelandic@mss.is / 421 7500 

Hæfniviðmið í íslensku útfrá evrópska tungumálarammanum



Íslenskar smásögur

Dags: 15. september - 17. nóvember
Tími: Mánudagar kl. 16:50-18:50
Staðsetning: MSS, Krossmói 4a
Tengiliður: icelandic@mss.is
Lýsing: Íslenskukennsla með áherslu á íslenskar sögur og bókmenntir. Námskeiðið er fyrir einstaklinga sem hafa náð góðum tökum á íslensku. Áhersla lögð á færniþættina fjóra: Talað mál, ritun, hlustun og lestur. Námskeiðið fer fram á íslensku. Farið er af stað þegar lágmarksþátttökufjölda hefur verið náð. *Birt með fyrirvara um breytingar.
Verð: 35.000

Sækja um

Íslensk málfræði

Dags: 18. september - 20. nóvember
Tími: Fimmtudagar kl. 17:00-19:00
Staðsetning: MSS, Krossmói 4a
Tengiliður: icelandic@mss.is
Lýsing: Íslenskukennsla með áherslu á íslenska málfræði. Námskeiðið er fyrir einstaklinga sem hafa náð góðum tökum á íslensku. Námskeiðið fer fram á íslensku og er fyrir þá sem hafa lokið að minnsta kosti íslensku 1-4. Farið er af stað þegar lágmarksþátttökufjölda hefur verið náð. *Birt með fyrirvara um breytingar.
Verð: 35.000

Sækja um
Íslenska fyrir lengra komna