Menntastoðir - Staðnám

Menntastoðir - Staðnám

17. ágúst 2026 - 16. desember 2026

Sækja um

Verð: 226.500 kr.

Um námskeiðið

Menntastoðir eru undirbúningsnám fyrir frumgreinadeildir Keilis, Bifrastar og H.R.
Auk þess má meta námið sem hluta af bóklegum greinum í iðnnámi. Lokamarkmið Menntastoða er fyrst og fremst að námsmenn auki færni sína í þeim námsþáttum sem kenndir eru þannig að þeir geti tekist á við nám við frumgreinadeild háskóla, þ.e. uppfylli viðmið á þrepi tvö.
Námið er einnig í boði í fjarnámi.

Markmið eru að námsmaður:

  • þekki þær leiðir sem henta honum til náms
  • hafi jákvæð viðhorf gagnvart áframhaldandi námi
  • hafi bætt sjálfstraust sitt og aukið færni sína í samskiptum við aðra     
  • sé fær um að vinna verkefni sjálfstætt og skipulega, afla og miðla upplýsingum með ýmsu móti           

Námsgreinar:

  • Enska
  • Danska
  • Íslenska
  • Lokaverkefni
  • Námstækni
  • Samfélagsgrein
  • Stærðfræði
  • Upplýsingatækni

Námsmat:
Verkefnaskil, kannanir og virk þátttaka (símat).

Kennslufyrirkomulag:
Staðnám í Menntastoðum tekur rúma fjóra mánuði og getur numið allt að 60 framhaldsskólaeiningum. Staðnám er kjörið fyrir þá nemendur sem hafa svigrúm til að ljúka námi á stuttum tíma.
Námið er einnig í boði í fjarnámi.

Tími og staðsetning: 
Kennsla fer fram virka daga frá kl. 08:30–15:30 nema á föstudögum til kl. 12:10 í húsnæði MSS.

Styrkir vegna skólagjalda:
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga og atvinnuleitendur geta leitað til VMST.
Ekki gleyma að kanna þinn rétt.

Nánari upplýsingar:
Linda og Hólmfríður - Netfang: menntastodir@mss.is - Sími: 421-7500.
Haft verður samband við alla skráða nemendur í byrjun ágúst.

Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði - verð er birt með fyrirvara um breytingar á verðskrá Fræðslusjóðs.