Meðferð matvæla - Fjarnám

Meðferð matvæla - Fjarnám

21. september 2026 - 2. nóvember 2026

Sækja um

Verð: 20.000 kr.

Um námskeiðið

Viltu kynna þér matvælaöryggi? Vegna góðra viðbragða bjóðum við aftur upp á námskeiðið í fjarnámi.

Öryggi og fagleg þekking í meðhöndlun matvæla er afar mikilvæg í allri matvælavinnslu. Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa eða hyggjast starfa við matvælavinnslu, svo sem í eldhúsum, á veitingastöðum, í matvælaþjónustu eða öðrum störfum þar sem unnið er með mat.
Námið er 60 kennslustundir og hægt er að meta það til allt að 5 eininga á framhaldsskólastigi. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Námsþættir:

  • Matvælaörverufræði
  • Innra eftirlit, HACCP/GMP
  • Gerð matseðla, vöruþekking og fæðuflokkar
  • Að auka hollustu máltíða og tilbúinna matvæla
  • Geymsluþol, skynmat, vöruþekking
  • Ofnæmi og óþol
  • Þrif og sótthreinsun

Námsmat:
Mætingarskylda, verkefnaskil og virk þátttaka (símat).

Tími og staðsetning:
Námið fer fram frá 21. september til 2. nóvember 2026. 
Kennsla er á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 17:00 – 19:00.
Þátttakendur sækja tímana í fjarnámi. Hægt er að horfa á upptökur kennslustunda síðar, en þá þarf að skila ígrundun og verkefnum um efni tímans.

Styrkir vegna skólagjalda:
Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiðsgjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga og atvinnuleitendur geta leitað til VMST.
Námið er án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar. Skráning fer fram á heimasíðu Starfsmenntar: https://www.smennt.is/forsida/
Ekki gleyma að kanna þinn rétt.

Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna María og Hólmfríður - Netfang: namskeid@mss.is - Sími: 421-7500.

Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði - verð og upplýsingar eru birt með fyrirvara um breytingar á verðskrá Fræðslusjóðs.